Álverð fallið um 13,5% í sumar

Álverð hefur fallið um hálft fjórtánda prósent frá því í síðasta mánuði og hefur aðeins einu sinni verið lægra á undanliðnum sex árum. Tonnið af áli kostar nú 1710 dollara en var að andvirði 1980 dollara í byrjun maí.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem segir að þrjár ástæður séu einkum fyrir fallandi álverði; dauflegt sé um að litast í efnahagslífi margra þjóða á Vesturlöndum, hagvöxtur í Kína hafi minnkað til muna sem aukiið hafi útflutning þaðan á áli og við bætist miklar birgðir af áli í Evrópu og Bandaríkjunum.

Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls, samtaka álfyrirtækja á Íslandi segir við blaðið að framleiðendur hér á landi velti sér lítið upp á verðsveiflum til skamms tíma, ef litið sé til næstu ára megi búast við 6% stöðugum vexti í greininni.