Leikfélag Akureyrar frumsýndi söngleikinn Gallsteinar afa Gissa um helgina í Samkomuhúsinu á Akureyri. Af því tilefni ræddi Linda Blöndal ræddi við Mörtu Nordal, leikhússtjóra LA, og Karl Ágúst Úlfsson, sem leikur aðalhlutverkið í sýningunni og samdi söngtexta, í innslagi í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld.
Marta hefur verið leikhússtjóri LA í tæpt ár og Gallsteinar afa Gissa er önnur sýningin sem er sett upp undir hennar stjórn. Báðar sýningarnar eiga það sameiginlegt að vera söngleikir sem eru stórir í sniðum. „Annars vegar söngleikur sem er kannski ætlaður fullorðnum og núna erum við með barnasöngleik. Þetta einkennist af stórhug myndi ég segja.“
Kristín Helga Gunnarsdóttir er höfundur sýningarinnar og byggði hana á samnefndri bók sinni. „Ég kynntist henni þegar ég var í svona höfundasmiðju og þá var hún með þetta verk sem við vorum að vinna með og mér fannst þetta strax alveg rakin saga á svið. Ég var reyndar líka búin að lesa bókina fyrir krakkana mína. Þetta er svona saga sem bæði talar mjög sterkt inn í okkar samtíma og líka til foreldra og barna. Fyndin, beitt, hún er með allt,“ segir Marta.
„Afi Gissi er svona slakur náungi. Hann er gamall sjóari og hefur farið víða, átt margar kærustur. Hann skilur börnin ósköp vel. Maður vill stundum fá sér sælgæti og vill ekki alltaf borða lífrænt endilega í öll mál. Þau leita svolítið athvarfs og stuðnings hjá honum. Svo veikist gamli maðurinn og það þarf að skera úr honum gallsteina. En honum tekst að telja börnunum trú um það að þessir gallsteinar séu rammgöldróttir. Þetta séu eiginlega óskasteinar og þau láta reyna á það,“ segir Karl Ágúst um söguþráð Gallsteina afa Gissa.
Skilaboð söngleiksins eru margþætt að sögn Karls Ágústs: „Eitt er nú það að maður þarf stundum að gæta hvers maður óskar sér því að óskir geta ræst. En líka það að við þurfum gæta vel að því hvernig samskipti við eigum hvað við annað. Fjölskyldur þurfa að hlúa að sjálfum sér. Foreldrar og börn þurfa að eiga skilningsrík samskipti og það þarf að taka tillit til allra.“
Innslagið, sem inniheldur m.a. brot úr generalprufu sýningarinnar og viðtölin við Mörtu og Karl Ágúst í heild sinni, er að finna hér: