Leita þarf utanaðkomandi, hlutlauss fagaðila til að taka á samskiptavanda hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Ríkisútvarpið greinir frá þessu.
Tekin voru viðtöl eftir ábendingar við tuttugu starfsmenn embættisins, alla tíu manna yfirstjórn þess og síðar tíu millistjórnendur. „Niðurstaðan er skýr; það er mikið að“.
„Það er mat ráðgjafa að nauðsynlegt sé að ráðast tafarlaust í aðgerðir sem miða að því að taka á umræddum vanda og eindregið mælt með því að embætti LRH fái sér til aðstoðar utanaðkomandi og hlutlausan fagaðila sem yfirstjórn LRH ber fullt traust til,“ segir í frétt Rúv um málið
Rúmt hálft ár er síðan innanríkisráðuneytið fékk Leif Geir til að ræða við alla helstu yfirmenn lögreglunnar í Reykjavík vegna samstarfserfiðleika innan yfirstjórnar. Mánuður er síðan vinnusálfræðingurinn upplýsti ráðuneytið um það sem fram kom í viðtölum hans.
Miklar skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því að Sigríður Björk Guðjónsdóttir tók við sem lögreglustjóri. Hún ræddi móral starfsmanna í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á dögunum og sagði mikið álag og þreytu innan lögreglu.
Tjáning tiltekinna lögreglumanna hefur verið til skoðunar eins og lesa má um í þessari frétt Hringbrautar.