Ung stúlka slasaðist alvarlega þegar hún missti stjórn á snjósleða í Austur-Húnavatnssýslu í gær og endaði undir landbúnaðartæki.
Hún ásamt annarri stúlku, farþega á sleðanum, var sótt með sjúkraflugvél á Sauðárkrók þar eð báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar voru í útkalli í Öræfum.
Farþeginn mun ekki mikið slasaður en stúlkan sem ók sleðanum alvarlega slösuð.
Farið var með stúlkurnar á Landspítalann Í Fossvogi.
Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins.