Alvarlegt bílslys á norðurlandi - þurftu að beita klippum

Alvarlegt bílslys varð í nágrenni við Húnaver um hádegisbil í dag. Þurftu viðbragsaðilar að beita klippum til að koma bílstjóra og farþega út úr bifreiðinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja fólkið á spítala í Reykjavík. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var fólkið með meðvitund þegar hún mætti á slysstað.