Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, lýsir yfir áhyggjum af þeirri niðurstöðu lögreglu að ekki hafi þótt ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um nauðganir í október síðastliðinn.
Samtökin sendu frá sér fyrirlýsingu í gærdag: \"Málið hljómar mjög alvarlegt þar sem bæði var einbeittur brotavilji, fyrirfram skipulagður glæpur framinn og um samvinnu tveggja aðila að ræða,“ segir í ályktun frá Aflinu sem barst fjölmiðlum rétt í þessu.\"
Í yfirlýsingunni var ennfremur sagt: \"Þar að auki virðast aðstæður hafa verið hrottafengnar og grunur um að lyf hafi verið notuð við verknaðinn. Þessu til viðbótar eru þetta tvö aðskilin mál þar sem annar gerandinn virðist hafa tekið þátt í báðum nauðgunum og því um endurtekningu að ræða, sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en að um ógnun við almannahagsmuni sé að ræða.
Ef allt þetta reynist vera grunur lögreglu er það mjög alvarlegt mál ef lögreglu þykir það ekki ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum.Þá er líka alvarlegt ef rétt reynist að annar mannanna hafi getað farið úr landi en það virðist þá heldur ekki hafa verið farið fram á farbann yfir mönnunum.“