„Alla jafna hefur það ekki þótt fréttnæmt að ég fari til útlanda í stuttan tíma hvað þá að það verði aðalfrétt þegar ég kem til baka. Ég var ekki að koma frá tunglinu eftir frækilega göngu í gömlum sporum Armstrongs,“ þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðsflokksins á Facebook í dag í færslu sem aðallega beinist þó gegn Kára Stefánssyni og viðtali við hann í Kastljósi í gær.
„Þessi heift og reiði í minn garð sem skýnja mátti hjá Kára í umræddum Kastljóssþætti er augljóslega vegna gagnrýni minnar á aðgerðir yfirvalda í tengslum við frelsissviptingar á sóttvarnahóteli, sem voru alltof víðtækar og auk þess augljóslega ólögmætar. Geri mér grein fyrir því að sjónarmið Kára hafa víðtækan hljómgrunn í samfélaginu og ætla má að stjórnmálamenn sem tali gegn þeim séu annað hvort fullkomnir fávitar eða að kveðja stjórnmálin.“ Þetta segir Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Facebook í dag.
Í færslunni kallar Brynjar Kára Stefánsson hrokafullan „sérfræðing að sunnan.“
„Má segja að Kári sé sérfræðingur í öllu, öðrum fremri, og þar fékk ég og þjóðin öll ókeypis fræðslu um sóttvarnir og ekki síður lögfræði. Hann er sérfræðingur að sunnan og býr sennilega alveg syðst á landinu. Ég hef alltaf haft frekar gaman af hrokafullum mönnum. Dass af hroka getur stundum verið nauðsynlegt til að koma viti í umræðuna. En þegar hrokinn er bara hluti af óstjórnlegu frekjukasti missir hann marks og allur sjarmi hverfur. Þess vegna tapaði Donald Trump kosningunum síðast.“
Brynjar gerir svo grein fyrir ástæðu utanfarar sinnar. Hún hafi alls ekki verið að óþörfu.
„Rétt er að taka það fram að þessi utanferð mín var fjarri því að vera óþörf. Deila má um hvort hún hafi verið bráðnauðsynleg. Þannig stendur á að elsti bróðir minn býr á Spáni ásamt konu sinni, sem fékk alvarlegt heilablóðfall fyrir tæpu ári síðan. Hugsunin var sú að við bræður hans kæmum ásamt eiginkonum til að létta undir með honum í smá tíma. Einnig að gefa honum kost á að eiga stund með bróður okkar, sem glímir við Alzheimer, áður en hugurinn hverfur alveg.“
Brynjar brýnir að lokum fyrir fólki að láta ekki óttann og hræðsluna ná tökum á sér og láta réttindi fólks víkja meira fyrir henni en góðu hófi gegnir.
„Hvað sem því líður megum við ekki ganga lengra gegn réttindum fólks en nauðsynlegt er og lög heimila. Það er hins vegar hætt við að það vefjist ekki fyrir fólki að samþykkja slíkt þegar óttinn og hræðslan er alls ráðandi. Með aðgerðum sem skerða réttindi fólks meira en góðu hófi gegnir getum við nefnilega skaðað samfélagið meira en veiran sjálf.
Ég er ekki á móti sóttvarnaaðgerðum og hef aldrei verið. Geri engar athugasemdir við að vera í sóttkví heima hjá eftir þessa ferð og uni því vel. Stjórnvöld hafa að mestu leyti staðið sig vel og gera það vonandi áfram.“
Að lokum lýsir Brynjar áhyggjum sínum af eiginkonunni. Það er kunnuglegt stef hjá þingmanninum.
„Einu áhyggjur mína í augnablikinu eru af því hvernig eiginkonunni muni reiða af eftir að hafa setið föst með mér í fimm daga.“
Alla jafna hefur það ekki þótt fréttnæmt að ég fari til útlanda í stuttan tíma hvað þá að það verði aðalfrétt þegar ég...
Posted by Brynjar Níelsson on Föstudagur, 9. apríl 2021