Alvarleg staða í sjávarplássum

Sjómannaverkfallið hefur nú staðið í u.þ.b. tvo mánuði og er farið að hafa mikil áhrif sem ekki einungis ná til samningsaðila, heldur einnig stöðu landverkafólks og þeirra sem vinna óbein störf í sjávarútvegi og eru ekki aðilar að kjarasamningi sjómanna og útgerðarmanna. Þetta kemur fram í bókun stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem send var á sjávarútvegsráðherra, samningsaðila og alla Alþingismenns sem og fjölmiðla í dag.

Í henni segir meðal annars:

„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í sveitarfélögum allt í kringum landið í tengslum við verkfall sjómanna”. Bendir stjórnin á að í jafn mikilvægri atvinnugrein og sjávarútvegi, sé ábyrgð aðila mikil. „Ljóst er að staðan er þegar orðin alvarleg í mörgum sjávarútvegssveitarfélögum og stefnir í óefni að óbreyttu. Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga hvetur samningsaðila og ríkisstjórn Íslands til að leita allra leiða til að liðka fyrir lausn málsins, þannig að koma megi í veg fyrir frekara tekjutap þjóðarbúsins í heild sinni”, segir í bókuninnn sem gerð var föstudaginn 3.febrúar þegar síðasti samningafundur rann út í sandinn.