Alvarleg misnotkun miðils

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans skefur ekki utan af gagnrýni sinni á Fréttablaðið í leiðara sínum í dag. Þar segir hann stærsta dagblaðið sem er einn áhrifamesti fjölmiðill landsins, hafa vísvitandi afvegaleitt lesendur sína undanfarna daga.

Þar vísar Þórður í Al Thani-málið og leiðara Kristínar Þorsteinsdóttur ritstjóra Fréttablaðsins sem birtist í dag undir fyrirsögninni Dagblað sem segir fréttir. Þórður segir að það hafi í raun aldrei verið deilt um hvað mennirnir, sem dæmdir voru til þungrar refsingar í málinu, gerðu heldur einungis deilt um hvort það hafi verið ólöglegt. Hvort um glæpi hafi verið að ræða eða bara siðlausa, óábyrga og fullkomnlega skeytingalausa hegðun sem lögin næðu ekki utan um.
Þórður segir að sakborningarnir fjórir hafi verið fundnir sekir um það sem Hæstiréttur kallar alvarlegustu efnahagsbrot Íslandssögunnar. Og það sé alveg kýrskýrt að þeir voru ekki dæmdir í fangelsi á grundvelli eins símtals sem fjallaði um Óla eða Óla.

Hann er ómyrkur í máli: “Skrif Fréttablaðsins byggjast ekki á því að upplýsa lesendur. Þar eru hlutirnir settir grímulaust fram á afvegaleiðandi hátt til að leiða lesendur að ákveðinni hugmynd um að réttarkerfið sé rotið og hafi brotið gróflega á mannréttindum manna sem hafa verið dæmdir sekir.

Það er sannarlega varðhundur að gelta. En hann er ekki að gelta fyrir lýðræðið eða sannleikann. Hann er að gelta fyrir ákveðna og afmarkaða hagsmuni.”

Rætt var við Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómar um um Al Thani-dóminn í þætti Páls Magnúsonar Þjóðbraut síðastliðinn fimmtudag.