Helstu viðskiptaþjóðir Bandaríkjanna bregðast illa við ákvörðun Donalds Trumps að leggja 25% innflutningstoll á stál og 10% á ál. Greinendur eru á einu máli um að hún gæti leitt til viðskiptastríðs. Viðskiptaráðuneyti Kína sagði í yfirlýsingu að tollarnir væru „alvarleg árás gegn eðlilegum alþjóðlegum viðskiptaháttum“ en Cecilia Malmström innanríkismálastjóri ESB segist vænta sömu undanþágu frá tolllunum og Kanada og Mexíkó fá.
Malmström segist vænta nánari útskýringa frá Bandaríkjumönnum þegar hún hittir Robert Lighthizer viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna á morgun. Fyrr í vikunni hafði ESB hótað að svara með tollum á bandarískar vörur: mótórhjól, appelsínusafa, hnetusmjör, gallabuxur og amerískt viskí. ESB ætlar að láta reyna á lögmæti tollanna hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni.
Brigitte Zypries, efnahagsmálaráðherra Þýskalands, er mun harðorðari í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í dag. Þar segir hún að verndarstefna forsetans sé hrein móðgun við nánar samstarfsþjóðir og ekki síst við Þýskaland.
Japanska utanríkisráðneytið sagði ákvörðunina vonbrigði og að hún gæti haft áhrif á samstarf þjóðanna. Suður Kórea segir tollana óréttláta en kveðst ætla að reyna sitt besta til að komast á lista undanþáguþjóða.