Alþingistíðindi frá 1845-2009 aðgengileg á vef

Útgefin Alþingistíðindi frá 1845 til 2009 hafa verið skönnuð inn á PDF formi og eru nú aðgengileg blaðsíðu fyrir blaðsíðu á vefnum www.althingistidindi.is. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Alþingi.

Í tilkynningunni segir að saman muni vefirnir www.althingi.is og www.althingistidindi.is gefa fyllri mynd af störfum alþingismanna og störfum Alþingis allt frá endurreisn þess árið 1845.