Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir að nefndin muni skoða hvort tvær albanskar fjölskyldur hafi fengið rangar upplýsingar, sem leitt hafi til þess að þær hafi dregið kærur sína til baka áður en úrskurðarnefndin fjallaði um þær.
Fram kom í fréttum RÚV í gærkvöld að lögmaður annarrar fjölskyldunnar hefði ráðlagt henni að draga sína kæru til baka.
Þúsundir hafa skrifað undir áskorun til innanríkisráðherra um að afturkalla ákvörðun Útlendingastofnunar og bjóða fjölskyldum tveggja langveikra drengja, Arjans og Kevi, sem vísað var á brott í vikunni að snúa aftur til Íslands. Þá hefur verið efnt til mótmæla gegn brottvísuninni á Austurvelli klukkan fimm á þriðjudag.