Alþingi samþykkir áætlun

Stjórnarandstaðan á Alþingi gaf áætluninni falleinkunn. Áætlunin var samþykkt með 32 atkvæðum stjórnarþingmanna gegn 31 atkvæði stjórnaandstöðu þingmanna. Forsætisráðherra Bjarni Benediktsson sagði að ríkisstjórnin væri að lækka ríkisskuldir og búa í haginn fyrir framtíð Íslands. Bætt er fé í öll málefnasvið og um það ætti ekki að vera ágreiningur á Alþingi að Íslendingar lifa nú á uppbyggingarskeiði.   

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar var lögð fyrir Alþingi hinn 31.mars sl. og sýnir áætlunin forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Yfirlýst markmið þessarar áætlunar er að draga úr þenslu í hagkerfinu. Þá skal hún stuðla að sátt á vinnumarkaðnum og taka á háu gengi króunnar jafnhliða því að bæta opinbera þjónsutu og styrkja innviði Íslands. Stærstu útgjaldaliðir eru og verða heilbrigðismál og almannatryggingar.

rtá