Alþingi ræður ekki við þetta

Katrín Oddsdóttir, lögmaður sem sat í stjórnlagaráði og er formaður Stjórnarskrárfélagsins segir á Hringbraut í kvöld að tillögur sem komnar eru fram í frumvarpi á Alþingi séu illa unnar og betra að leggja þær til hliðar en að reyna að fá þær í gegn. Hún leggur til að Alþingi vinni frekar að frumvarpi um hvernig fara eigi að því að breyta stjórnarskránni. Þannig væri hægt að setja í lög að stjórnarskrárbreytingar færu fyrir þjóðaratkvæði. Slíkt ákvæði í tillögunum núna, um að 15 prósent kjósenda megi krefjast þjóðaratkvæðis, sé einungis til að hafna lögum, beita neitunarvaldi.

Hún segir tillögurnar enn fremur mjög úþynntar frá því sem stjórnlagaráð lagði til og margt í þeim sem standist illa. Þar hafi 25 ráðsfulltrúar mjög ólíkir einstaklingar komið sér saman um vel ígrundaðar tillögur sem hafði verið mikið afrek.  Katrin segir að stjórnmálaumræða hvers tíma flækist á endanum alltaf fyrir tilraunum til að breyta ákvæðum í stjórnarskrá og það sé að gerast núna líka.Alþingi ráði ekki við verkefnið vegna þess og tillögur þurfi að vinnast utan þingsins og fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Auðlindaákvæðið sem lagt er til að sett verði inn líti allir í ljósi pólitískra deilna um fiskveiðistjórnunarkerfið. Stjórnarskrárnefndin hafi líka ýtt útaf borðinu að leggja til ákvæði um hvernig framsal á valdi til alþjóðastofnana ætti að vera - eitthvað sem er bráðnauðsynlegt að gera, segir Katrín og það sé vegna þess að þá sé það túlkað sem leið til að innlima Íslands inn í Evrópusambandið.

Forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson hefur nú lagt þar fram sem þingmannafrumvarp sem er niðurstaða þverpólitískrar nefndar um breytingar á stjórnarskránni. Mælt verður fyrir frumvarpinu á morgun, fimmtudag.