Alþingi ömurlegasti vinnustaðurinn

Alþingi er ónýtt. Alþingi er ömurlegasti vinnustaður sem Þór Saari, fyrrum þingmaður Hreyfingarinnar, hefur starfað á.

Til að bæta þingið þurfi nýja stjórnarskrá. Núverandi fjórflokkur muni ekki standa að umbótum. Hagsmunahafar hafi í gegnum ráðherra mikil áhrif við frumvarpsvinnu, jafnvel á kostnað almannahagsmuna.

Þetta var meðal þess sem Þór ræddi í viðtali á Bylgjunni í gær. Þór segir mikilvægt að ráðherrar víki af þingi, þeir séu allt of valdamiklir, frumvörpin séu samin af þeim og starfsmönnum ráðuneyta og stundum undir áhrifum hagsmunaafla og klíkuskapar.

Hlusta má á viðtalið við Þór á Bylgjunni í heild hér. Hann hefur gefið út bók sem nefnist: Hvað er eiginlega að þessu Alþingi?