Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði á Þjóðbraut í gærkvöld að tímabært sé að Alþingi komi saman og skipi fólki til starfa í fjárlaganefnd.
Brýnt fer að verða að þingið taki til verka vegna fjárlagavinnunnar. Þetta var rætt í Þjóðbraut í gærkvöld og sagði Katrín gott ef vinna við fjárlög næsta árs hæfist fyrr en síðar.
-sme