Nýsamþykktar breytingar Alþingis á búvörulögum festa í sessi úrelt fyrirkomulag útboðs á innflutningskvóta fyrir búvörur sem hækkar vöruverð og hindrar samkeppni að mati Félags atvinnurekenda.
Forkólfar félagsins undrast þessa ákvörðun Alþingis frá því í síðustu viku og telja hana fara gagn hagsmunum alls almennings í landinu: \"Forsaga málsins er að í mars síðastliðnum felldi Héraðsdómur Reykjavíkur þrjá dóma þar sem innheimta útboðsgjalds fyrir innflutningskvóta á búvörur er úrskurðuð ólögmæt og í andstöðu við stjórnarskrá,\" segir í tilkynningu frá félaginu , en með þessu móti hafi Alþingi framselt of mikið skattlagningarvald til ráðherrans.
\"Stuttu fyrir þinglok skilaði meirihluti atvinnuveganefndar nefndaráliti um frumvarp um óskyldar breytingar á búvörulögum. Því áliti fylgdi breytingartillaga um að fella burt heimild ráðherra í búvörulögunum til að láta hlutkesti ráða úthlutun þegar umsóknir berast um meiri innflutning en nemur tollkvóta,\" segir ennfremur í tilkynningunni og síðar er bætt við: \"Breytingartillagan var sett fram eftir að hagsmunaaðilar höfðu komið á fund atvinnuveganefndar til að segja álit sitt á frumvarpinu, sem að uppistöðu fjallar um allt aðra hluti; flutning stjórnsýsluverkefna frá Bændasamtökum Íslands til Matvælastofnunar. Ekkert samráð var haft við hagsmunaaðila á borð við samtök fyrirtækja í matvælainnflutningi, samtök neytenda eða aðra sem málið varðar. Þessi veigamikla breyting fékk litla sem enga umræðu í nefndinni og á Alþingi. Eingöngu þingmenn Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar greiddu atkvæði gegn henni í atkvæðagreiðslu, en stjórnarflokkarnir og Vinstri græn studdu hana.\"
Loks segja forráðamenn Félags atviunnurekenda: \"Breyting meirihluta Alþingis á búvörulögunum gengur þvert gegn ábendingum Samkeppniseftirlitsins, sem hefur ítrekað lagt til að útboð á tollkvóta verði aflagt, nú síðast í skýrslu sinni um dagvörumarkaðinn í mars síðastliðnum: „Útboð landbúnaðarráðuneytisins á tollkvótum vegna innflutnings á kjöti, smjöri og ostum verði felld niður í núverandi mynd. Verði þau ekki lögð niður er lagt til að úthlutun verði endurgjaldslaus og eftir atvikum hlutkesti varpað sé ásókn umfram kvóta.“