Alþingi farið í sumarfrí

Alþingi lauk störfum í gær. Unnur Brá Konráðsdóttir þingforseti sagði við þingslit það kappsmál að ljúka störfum Alþingís í samræmi við starfsáætlun þingsins. Þingforseti rifjað upp að oft væri misbrestur þar á.

Þingforsti sagði að starfsáætlun Alþingis beri að taka alvarlega. Um það eigi allur þingheimur að sameinast. Mikilvægt sé að þingmenn geti reitt sig á að starfáætlunin standist í meginatriðum. Þannig geta Alþingismenn best skipulagt þátttöku sína í stjórnmálastarfi sem gerð er krafa til þeirra um utan Alþingis.

Veigamikill þáttur í því að slíkt takist er að ríkisstjórnin taki af fullri alvöru mið af starfsáætlun Alþingis í sínum störfum. Jafnframt þarf ríkisstjórnin að tryggja að stjórnarmál berist Alþingi nægilega snemma til að þinginu gefist næði og nægur tími til umfjöllunar um þau.

rtá

Nánar www.althingi.is www.mbl.is