Alþingi er trunta

Hinn íslenski Þursaflokkurinn söng: “Nútíminn er trunta. Með tóman grautarhaus”. Þannig hugsar almenningur til Alþingismanna í nútímanum. Traust til þingmanna er lítið. Og af hverju? Jú, kannski slæm mæting og nýlega hvernig þingnefndir vinna í nýjustu tíðindum.

Svo virðist sem að hægt sé að sækja í nafni fjárlaganefndar hins virðulega Alþingis ýmist skjöl innan stjórnsýslunnar sem annars bjóðast ekki óbreyttum borgara. Svo má formaðurinn skrifa skýrslu og bjóða til flugeldasýninga.

Fjölmiðlar eiga að vera á vaktinni. En þegar formaður í nefnd Alþingis kynnir skýrslu er því tekið alvarlega. Varla á að hætta því. Hætta að taka mark á fólki í valdastöðum.

Það er mikilvægt að við kjósendur vitum betur um þá vinnu sem Alþingismenn vinna í þingnefndum. Ókei. Fjölmiðlar sýna mest úr þingsal en auðvitað er vinnan ekki öll þar. Nema síður sé. Í ljósi þess að formaður fjárlaganefndar skrifar einn undir plagg sem lagt er fyrir þingið og sem virðist hennar prívat pólitíska mál í nefndinni, þá þurfum við að opna nefndarfundi allvel. Þeir eiga að vera í beinni útsendingu í miklu meira mæli en nú er.