Æ fleiri Íslendingar sem annað hvort hafa átt leið til útlanda eða eru búsettir þar, halda því fram að þrátlátlega sé nú spurt eftir fréttaumfjöllun alþjóðlegra fjölmiðla undanfarið hvort Ísland sé Sikiley norðursins eða jafvel spilltasta land veraldar. Með því er vísað til uppljóstrana úr Panamalekanum en einsdæmi er meðal lýðræðisríkja að fyrrum forsætisráðherra ríkis, núverandi formaður stærsta flokks og fjármálaráðherra, forseti ríkis, æðstu trúnaðarmenn stjórnmálahreyfinga, forstjórar lífeyrissjóða, borgarfulltrúar og hundruð Íslendinga til viðbótar hafi með siðlausum hætti nýtt sér smugur til að grafa undan samfélagskerfum hér heima fyrir.
Allmörg ummæli Íslendinga sem búsettir eru utan landsteinanna má lesa í athugasemdum við þennan pistil hér auk þess sem pistill Arthurs Björgins Bollasonar í vlkunni um hvernig Þjóðverjar ganga á hann og spyrja um spillingu frumstæðra og gráðugra Íslendinga lands hefur öðlast landsathygli.
Grímur Atlason, kosningastjóri Andra Snæs Magnasonar sem etur kappi við Ólaf Ragnar Grímsson og fleiri í baráttunni um Bessastaði segir ófagra sögu af eigin heimsókn út fyrir landsteinana.
\"Hef farið víða síðustu 3 vikurnar. Í Seattle hitti ég fólk. Í Los Angeles hitti ég fólk. Í Kaupmannahöfn hitti ég fólk. Það sagði mér frá því að spillingin á Íslandi væri sú mesta í vestrænum heimi og í raun í heiminum öllum. Þetta er staðan þó utanríkisráðuneytið haldi öðru fram. Vörumerkið Ísland er stórkostlega laskað. Forsíður eins og þessi hafa verið nær daglegt brauð frá því í byrjun apríl. Þetta er raunveruleikinn - ekki árás á einn né neinn heldur staðreynd. Við verðum að bregðast við - grípa í taumana,\" segir Grímur Atlason og lætur með færslu sinni á facebook fylgja með mynd þýsks dagblaðs að ofan.