Erfiðir tímar fara í hönd

Talsmenn embættis forseta Bandaríkjanna segja að hætt sé að svara spurningum fjölmiðla um tengsl forsetans og skylduliðs hans við rússneska embættismenn og auðmenn.

Fyrrum aðalframkvæmdastjóri bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) James Comey sem rekinn var úr því starfi fyrir skömmu mun koma fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings í næstu eða í þar næstu viku. Hann mun svara spurningum nefndarmanna um meint tengsl Donald J Trump forseta og fjölskyldu hans við Rússland og rússneska embættismenn og auðmenn.

Heimildir herma að James Comey muni leggja fram FBI gögn um þessi meintu tengsl. Þá eru líkur á að hann muni segja frá því að hann hafi verið beittur þrýstingi um að hætta rannsóknum á tengslum Michale Flynn fyrrum þjóðaröryggisráðgjafa forsetans við Rússland í aðdragand bandarísku forsetakosninganna á síðasta ári.

Donald J Trump forseti mun ef að líkum lætur ekki sitja auðum höndum þegar rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings tekur til starfa. Vinna slíkra rannsóknanefnda eru að öllu jöfnu fyrir opnum tjöldum.

Ljóst er að fosetinn og skyldulið hans þurfa öll að svara áleitnum spurningum þingamnna um tengsl þeirr við Rússa og Rússland í adraganda forsetakosninganna á síðasta ári og hvort þau tengsl séu enn fyrir hendi. Erfiðir tímar fara í hönd. 

rtá