Verður hallarbylting hjá samfylkingu?

Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri og bæjarfulltrúi, tekur undir með Ólínu Þorvarðardóttur þingmanni flokksins um að eitthvað þurfi að gera til að bæta gengi Samfylkingarinnar. Kemur fram í drögum að ályktun sem borin verður upp á fundi á Akureyri í kvöld að almennir flokksmenn verði að láta til sín taka þegar forystumönnum hefur mistekist.

Logi segist í samtali við Hringbraut styðja þessa ályktun. Rætt verður um að flýta landsfundi flokksins jafnvel um hálft ár og þar með formannskosningu. Ólína kom fyrst flokksmanna opinberlega fram í gær með þá hugmynd á facebook-síðu Samfylkingarinnar.

Árni Páll Árnason, formaður flokksins sagði í samtali við Hringbraut í gærkvöld að hann væri til í formannsslag hvenær sem er. Hann setur sig ekki gegn því að kosningu verði flýtt. Á sama tíma virðist ljóst að hann hyggist áfram gefa kost á sér.

Logi Már segir að umrótið núna og kröfur um breytingar hafi ekki beint með persónu formannsins að gera heldur þá stöðu sem flokkurinn sé í. Mikilvægt sé að fá góðan tíma til að endurskilgreina kúrsinn, full skammur tími sé frá landfundinum að kosningum 2017, ef landsfundi verði ekki flýtt. Er jafnvel rætt um að kosið verði um formann á landsfundi í maí ef lög flokksins leyfa.

En sýnir tillaga Samfylkingarfélagsins á Akureyri sem borin verður upp á fundinum í kvöld með skýrum hætti að flokksmenn eru ekki alveg hressir?

\"Við erum ekki alveg hressir, annars kæmi þetta ekki fram,“ svarar Logi Már eftir nokkra umhugsun. \"Ég er samt ekki að segja að hlutir séu einfaldir en mér finnst vanta býsna mikið upp á að Samfylkingin taki sig nógu alvarlega þegar kemur að almennum róttækum áherslum jafnaðarmennsku,“segir Logi Már.