Líf Magneudóttur, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, viðrar þá hugmynd á fésbók sinni hvort að almenningur eigi að taka sig til og kaupa hlut Eyþórs Arnalds, nýs leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í borginni, í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Í færslu hennar er látið að því liggja að Mogginn geti með þessu móti breyst samfélagsblað. \"Nú er bæði tækifæri til að losa Eyþór fljótt undan hagsmunatengslum sínum eftir að hann varð oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík og eignast hlut í sögufrægum fjölmiðli ef nægilegt fjármagn safnast fljótt,\" skrifar Líf og botnar: \"Þetta væri einhvers konar lýðræðisverkefni líka...\"
Eyþór á 22,87 prósent hlut í Árvakri. Hlutinn eignaðist hann á síðasta ári. Hann er að auki stjórnarmaður í alls 26 eignarhaldsfélögum og fyrirtækjum. Eyþór sagði við RÚV í gær að hann væri þegar byrjaður að slíta á hagsmunatengsl í ljósi nýrrar stöðu sinnar, en hann ætlaði sér að hafa „algjöran aðskilnað á því sem að ekki passar.“