Almenningur borgar rekstur moggans!

"Samkvæmt hugmyndum sjávarútvegsráðherra um veiðigjald þarf ekki nokkur maður að hafa áhyggjur að afkomu Morgunblaðsins," sagði Karl Th. Birgisson ritstjóri Herðubreiðar í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld.


Þar var meðal annars rætt um stöðu prentmiðlanna og barst talið að árvissum taprekstri Morgunblaðsins. Karli var þar að orði: "Ef að sjávarúrvegsfyrirtæki sem leggja fjármuni til Morgunblaðsins þá dregst sú upphæð frá stofni veiðigjaldsins, þannig að því meiru sem Mogginn tapar og þeim mun meira sem útgerðin þarf að leggja til Moggans því minna borgar hún af veiðigjaldi - og þar af leiðandi er það alltaf almenningur sem borgar rekstur Moggans á endanum." Og hann bætti við: "Rekstur Moggans er því ekki mikið áhyggjuefni fyrir eigendur hans því peningarnir sem þeir láta í Moggann hefðu annars farið í ríkissjóð."


Umræðan í þættinum fór annars um víðan völl, frá fjárkúgunarmálinu til feminískrar umræðu um kynferðisbrotamenn og frá veikum fjórflokknum til vanda hins venjulega stjórnmálamanns sem almenningur skilur ekki lengur.


Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr honum á forsíðu vefjarins.