Almar spilaði á sinfóníu þjóðarsálar

Einn af athyglisverðustu pistlahöfundur Hringbrautar, Tryggvi Haraldsson klappar Almari Atlasyni, listamanni á axlirnar og segir að vera hans í lokuðum kassa í heila viku hafi auðgað skilgreiningu fólks á listum.

Tryggvi er glaður með allt heila uppátækið - og segir um Almar: \"Hann kveikti tilfinningar hjá fólki sem aldrei hefur verið hlynnt listamannalaunum eða sinfóníuhljómsveit og kallaði fram viðbrögð frá fólki á leikskólaaldri til fólks sem komið var á eftirlaun. Almar framkvæmdi list sína fullkomnlega án þess að hafa á nokkru stigi neytt eða reynt að hafa áhrif á einn einasta mann öðruvísi en með því að segja ekki orð í glerkassa sem streymt var út á netið.\"

Hann segir flesta hafa haft gaman að þessu uppátæki meðan Almari hafi tekist að opinbera aðra og þeirra ofvirku athugasemdalanganir: \"Almari tókst að framkvæma gjörning úr okkur hinum sem sýndum öll þau óútreiknanlegu viðbrögð sem aðgerðir hans í glerkassa og ekki síður aðgerðarleysi hans kölluðu fram. Hann spilaði sinfóníu á viðkvæma þræði þjóðarsálarinnar án þess svo mikið sem skrifa eina stöðuuppfærslu eða umdeilda athugasemd,\" skrifar Tryggvi.

Æðruleysið hafi hér skipt sköpum, eins og stundum áður: \"Almar tók labb út á mánudaginn, bað „fréttamann“ um að fá sér malt og appelsín, faðmaði kennara sína nakinn, byrjaði á að fá sér smók og spurði svo hvort ekki væri búið að fjalla nógu mikið um þetta,\" skrifar Tryggvi og bætir við: \"Hann tímasetti gjörninginn meira að segja það vel að fellibylur gekk yfir landið kvöldið sem fréttamiðlarnir höfðu tekið frá undir endalok gjörningsins. Hann vildi geta labbað út, fengið frið en samt fá 10 í áfanganum.\"

Niðurstaða Tryggva er þessi: \"Hann gerði gott betur og sýndi hvernig list vekur viðbrögð og er viðbrögð.\"