Almar smári í losti: foreldrarnir senda frá sér yfirlýsingu - „beinið hatri ykkar að þeim sem er sekur“

Gunnar Jóhann Gunnarsson er grunaður um að hafa drepið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson á heimili hans í Noregi. Gunnar Jóhann situr nú í gæsluvarðhaldi. Annar maður var úrskurðaður í viku gæsluvarðhald en var sleppt fyrr þar sem hann lá ekki undir grun. Sá maður heitir Almar Smári Ásgeirsson. Foreldrar hans hafa nú sett frá sér yfirlýsingu og lýsa yfir sakleysi sonar síns líkt og fram kemur á DV. Í yfirlýsingu foreldranna segir:

„Sonur okkar er frjáls vegna þess að hann er saklaus um aðild að morðinu á Gísla Þór Þórarinssyni. Hann var ekki á staðnum þegar það var framið og hann hringdi á hjálp um leið og hann vissi hvað hefði gerst.“

Segja foreldrarnir að Almar sé í losti. Þá segja þau einnig:

„Vinsamlega beinið hatri ykkar að þeim sem sekur er um þennan hræðilega glæp. Við þá sem ég hef hingað til talið til vina minna vil ég segja þetta:

„Vinsamlega hringið í mig og spyrjið ef þið eigið erfitt með að skilja einhvern hluta af þessari yfirlýsingu. Í rauninni hefðuð þið getað hringt í mig hvenær sem er þessa síðustu daga og spurt. Vinsamlegast deilið.“