Almannavarnir ríkisins vara við miklu óveðri á morgun, en þá ganga skil norðaustur yfir landið með austan stormi og hríðarbyl á öllu landinu, fyrst suðvestantil.
\"Á morgun er því ekkert ferðaveður,\" eins og segir í tilkynningu Almannavarna í dag.
Það er búist við vaxandi austan átt í nótt. Snemma í fyrramálið er svo gert ráð fyrir slæmu skyggni vegna skafrennings víða suðvestanlands, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbraut. Það hvessir loks enn þegar líður á morguninn og fer að snjóa og má búast við mikilli snjókomu fram eftir degi.
Síðdegis milli klukkan 15.00 og 18:00. snýst vindur í hægari vestan átt með éljagangi, fyrst á Reykjanesi. Versnandi veðri er svo spáð austanlands seint á morgun með austan hvassviðri eða stormi og mikilli ofankomu.