Þórólfur og Víðir boða til fundar – Staðan varhugaverð

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun vegna nýrra COVID-19 smita hér á landi.

„Í ljósi COVID-19 smita nú í vikunni má segja að staðan hér á landi sé varhugaverð,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Upplýsingafundurinn fer fram á morgun, fimmtudaginn 15. júlí, klukkan 11:00 og fara Þórólfur Guðnasson sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna yfir stöðu mála

Síðasti upplýsingafundur var 27.maí síðastliðinn en í júní lýstu Almannavarnir því yfir að slíkir fundir myndu brátt heyra sögunni til.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í morgun að einstaklingarnir sem greindust með COVID-19 síðastliðinn mánudag voru með Delta afbrigðið.