Almannatengill og lögmaður að baki varnarpistlum skipstjóra

Þorbjörn Þórðarsson, almannatengill, og Arna Bryndís Baldvins McClure, lögmaður Samherja, höfðu aðkomu að pistlum sem Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, birti undir sínu nafni á vef Vísis. Í pistlum sem Páll hefur birt frá umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um meintar mútur og peningaþvætti Samherja í Namibíu kemur hann fyrirtækinu til varnar og gagnrýnir blaðamenn Kveiks og Stundarinnar harðlega.

Hér má lesa pistla Páls.

Í forsíðuumfjöllun Stundarinnar í dag eru birt samskipti sem benda til að Þorbjörn hafi í einhverjum tilfellum hreinlega skrifað pistla Páls eða breytt þeim verulega. Páll mun hafa boðið fram aðstoð sína eftir umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í nóvember 2019. Í samskiptunum sem Stundin hefur undir höndum leiðbeinir Þorbjörn Páli hvernig hann þurfi að vista textann sem hann sendi í nýju skjali áður en greinin er send til birtingar til að láta líta út fyrir að skjalið sé frá Páli komið.

Hér má lesa umfjöllun Stundarinnar um málið.