Kjartan Már segist hugsi yfir álagningarskránum sem nú liggja frammi á bæjarskrifstofunum og væntir þess að hið sama sé uppi á teningnum í mörgum öðrum sveitarfélögum.
\"Í svona litlu samfélagi eins og okkar þá þekkja kannski ekki allir alla, en margir marga,“ segir Kjartan í viðtali við fréttastofu RÚV. „Þegar maður sér einstaklinga sem eru að gefa upp á sig lágmarkslaun og borga algjört lágmarksútsvar til sveitarfélagsins en maður veit að þeir hafa það bara ansi gott og eru i eigin rekstri og eiga mörg hús og marga bíla og fara í margar utanlandsferðir og allt það verður maður hugsi. Ég er bara aðeins að fara yfir þetta mál.“
Bæjarstjórinn segir að sveitarfélög verði af miklum fjárhæðum vegna þessa, og Reykjanesbær þurfi á hverri krónu að halda. Vinna þurfi saman að því að fleiri greiði sáttir sinn skerf í samneysluna, í stað þess að reyna að koma sem mestu undan. „Ég veit þetta er ekki endilega ólöglegt - en það er spurning með siðferðið.“
\"Í pistlinum tek ég sem dæmi druslugönguna sem var um síðustu helgi. Henni var ætlað að skila skömminni til gerendanna og þeirra sem eiga skömmina. Ég velti fyrir mér hvort það sé með einhverju svona móti hægt að höfða til samvisku þessara einstaklinga, því þeir vita auðvitað upp á sig skömmina,“ segir Kjartan Már í samtali við RÚV um skrif sín.