Það hefur alltaf verið vorhret

Það hefur alltaf vorað seint og verið kalt í maí segir Margrét Erla Maack, sem var gestur Karls Ágústs Úlfssonar  í þættinum Helginni í gærkvöldi. Margrét vitnar í Maístjörnuna, kvæði nóbelsskáldsins Halldórs Laxness, máli sínu til stuðnings: „Það er vorhret á glugga, napur vindur sem hvín."


Margrét segir þjóðina vera rosalega gleymna þegar kemur að veðurfari, það komi henni alltaf á óvart þegar setja þarf nagladekkin undir og jafnmikið á óvart hvað vorið er lengi að koma.


„Kannski muna margir eftir því að sitja inni að lesa fyrir vorprófin og það var rosalega gott veður úti," segir Margrét.  „En þeir sem voru úti vita að það var kalt,"


Þetta sé í raun sambland af gleymsku og bjartsýni þjóðarinnar segir Margrét, sem fór á kostum í frábærum Helgarþætti að hætti Karls Ágústs.