Björt framtíð mælist með 4,4% í nýjustu fylgiskönnun MMR. Guðmundur Steingrímsson, formaður flokksins, segist í samtali við RÚV í dag ekki hafa eitt rétt svar við því hvað valdi fylgistapinu. Flokkurinn þurfi þó að hætta að láta aðra skilgreina sig og koma sjálfur á framfæri sínum boðskap.
Heiða Kristín Helgadóttir, einn af stofnendum Bjartrar framtíðar, skaut föstum skotum að forystu flokksins í viðtali í Kjarnanum í gær, en Heiða, sem er varaþingmaður Bjartar Ólafsdóttur, ætlar ekki að taka þingsæti í haust þegar Björt fer í fæðingarorlof. Hún segir vanda Bjartrar framtíðar vera vanda formannsins og þeirra sem starfi í flokknum.
Í viðtalinu við RÚV í dag er Guðmundur spurður hvort hyggist segja af sér í ljósi fylgistapsins? \"Ég er alltaf reiðubúinn að íhuga stöðu mína og ég vil hlusta á gagnrýni á mín störf og tek skoðanakannanir mjög alvarlega. Samkvæmt lögum okkar í Bjartri framtíð hvílir það á herðum formannsins að koma stefnunni á framfæri,“ segir Guðmundur. Hann segir Bjarta framtíð vilja langtímahugsun í stjórnmálin og að flokkurinn ætli að láta að sér kveða á Alþingi í haust.
Hann bætir við: \"Við öll í flokknum erum ákveðin í að gefa í og segja hvar við stöndum. Við erum frjálslyndur, grænn, víðsýnn og umburðarlyndur flokkur sem vill langtímahugsun í stjórnmálin og erum á móti öllu kjaftæði.“ Hann segir Bjarta framtíð koma til þinghalds í haust með þéttan þingmálapakka að loknum ársfundi, sem haldin verður í byrjun september.
Formaðurinn kvíðir ekki framtíðinni: \"Við höfum bara nokkuð góðan tíma, held ég, til að sanna fyrir fólki að við erum ekki bara einhver flokkur sem snýst um vinnustaðamóral á Alþingi eða að breyta klukkunni, eins og maður hefur verið að lesa. Við erum flokkur með mjög stórt hjarta og mikla stefnu og viljum gera þetta samfélag á svo margan hátt betra. Það þurfum við að fara að segja fólki og ætlum að gera.\"
Björt framtíð var stofnuð árið 2012 af Guðmundi og Heiðu. Flokkurinn fékk 8,2% atkvæða í þingkosningum 2013 og sex þingmenn kjörna.