Áhorfendur Skúrsins fengu að berja augum forláta Volvo Amazon í þætti gærkvöldsins, en hann er í eigu Gunna síma, sem svo er kallaður, en þar er á ferðinni enginn venjulegur bílakarl.
Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en Gunni, sem heitir fullu nafni Gunnar B. Gunnarsson heillaðist algerlega af Amazon-týpunni þegar hann var rétt innan við fermingu og hét sjálfum sér að eignast bíl af þessu tagi þegar fram liðu stundir. Draumurinn rættist þegar hann var 19 ára gamall og bíllinn sem kom þá í hlut hans ehfru verið í eigu hans æ síðar. Hann hefur sinnt honum vel í gegnum tíðina og gert hann upp eftir því sem þurft hefur.
Í þætti gærkvöldsins kynnast áhorfendur líka bílaforritun sem er að sögn umsjármannsins Jóa Bachmann alveg magnað fyrirbæri - og svo fá þeir einnig að kynnast ´76-árgerðinni af Wagoneer sem er í eigu Hjalta Tómassonar, en hann er með stærsta takkaborði sem Jói hefur séð og minnir helst á stjórnklefa flugvélar. Hjalti vissi af bílnum út við húsvegg og áhvað að bjarga honum og er nú þegar byrjaður á honum.
Skúrinn er alla jafna opnaður klukkan 20:30 á mánudagskvöldum, endursýndur á þriðjudögum og allir þættirnir aðgengilegir á vefnum hringbraut.is.