Allt stefnir í lög á verkföll í dag

Fátt ef nokkuð virðist geta komið í veg fyrir að stjórnvöld setji lög á verkföll heilbriðgisstarfsmanna á Landspítalanum í dag, en úrslitafundir í deilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Bandalags háskólamanna við viðsemjendur í gær, báru ekki árangur.


Þar með virðist ljóst að hvorki sáttanefnd né samningsleiðin virðist duga í þessari erfiðu deilu sem í tilviki BHM hefur staðið yfir í tvo mánuði og fjórum dögum betur, en hjúkrunarfræðingar hafa verið í vinnustöðvun í ríflega tvær vikur. Enn ber það langt í milli að næsta tilgangslaust virðist vera að halda fundahöldum áfram, en þar takast á býsna ólík sjónarmið; samningafólk BHM og FÍH leggja höfuðáhersl á að nýir samningar endurspegli menntun starfsfólks og séu vel samanburðarhæfir við viðmiðunarstéttir, en samningamenn ríkisins hafa aftur á móti ekki umboð til að semja við þessi stéttarfélög umfram þá samninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði. Hvað launaliðinn varðar munar hér minnst 15% að því er heimildir Hringbrautar herma. Sú gjá verður vart eða ekki brúuð á næstu dögum eða vikum.


Í þessu ljósi má segja að fullreynt hafi verið við samningaborðið í Borgartúni. Lög á verkföllin virðast því varla umflúin - og er útlit fyrir að til skarar verði látið skríða í dag.


Lagasetningin kann þó að verða ríkisvaldinu tvíbeitt vopn, því í loftinu liggur hótun fjölmargra hjúkrunarfræðinga, geislafræðinga, lífeindafræðinga og náttúrufræðinga við Landspítalann um fjöldauppsagnir komi til lagasetningar á verkfallið - og þá taki vandi sakir framtíðarmönnunar við af undanþágumönnun.


Á móti kemur að landlæknir hefur lýst ábyrgð á hendur stjórnvöldum fyrir að vinna óafturkræft tjón á verkfalli heilbrigðisstarfsfólks á Landspítalanum - og verða það að teljast nokkur rök í tilviki framkvæmdavaldsins.