Allt bendir til að allsherjarverkfall verði hjá BHM á morgun. Fundur samninganefnda ríkisins og BHM hefst hjá ríkissáttasemjara nú eftir hádegi, en ekki ríkir mikil bjartsýni um að útspil ríkisins verði til þess að fresta aðgerðum.
Þá munu 3009 félagsmenn leggja niður störf. Verkföll hófust í gær hjá hluta aðildarfélaga BHM og er áhrifa þeirra strax farið að gæta, sérstaklega hjá Landspítala. Þar finna menn strax fyrir því að þjónusta minnkar og biðlistar lengjast.
Samninganefnd ríkisins kynnir tillögur sínar í kjaraviðræðunum hjá ríkissáttasemjara nú á eftir. Ekki hefur verið fundað í deilunni síðan fyrir páska.