Kynleiðréttingar voru ræddar í þaula og af hispursleysi í upplýsingaþættinum Ég bara spyr á Hringbraut í gærkvöld, en þættirnir eru á meðal vinsælasta efnis sem sjónvarpstöðin sýnir, enda fást þar svör við stórum spurningum.
Ugla Stefanía Jónsdóttir var gestur þáttarins, sem hægt er að nálgast hér á hringbraut.is, en hún segir ferlið langt og strangt fyrir þá sem fara í kynleiðréttingu og það eigi ekkert síður við um aðstandendur þeirra, sem líka þurfi sinn tíma til að átta sig á þeirri breytingu sem kynleiðréttingin felur í sér.
Margir virðast misskilja í hverju leiðréttingin felst og í þætti gærkvöldsins spyr Rakel Sveinsdóttir þeirra spurninga sem margir eru feimnir við að spyrja um: Hver er kynhneigðin? Virka kynfærin? Mega börn halda áfram að kenna sig við föðurnafnið ef faðirinn hefur farið í kynleiðréttingu og heitir nú kvenmannsnafni?
Ugla Stefanía segir marga misskilja í hverju kynleiðrétting felst og eitt af því sem geri transfólki erfitt fyrir, er að samkvæmt lögum frá árinu 2012, er kynleiðrétting skilgreind sem hluti af kynáttunarvanda fólks. Transfólk eru hins vegar einstaklingar, sem eru ekkert í vafa um, hvert hið rétta kyn þeirra er.
Nöfnurnar Rakel Sveinsdóttir og Rakel Garðarsdóttir eru umsjónarmenn Ég bara spyr og segir Rakel Sveinsdóttir þáttinn að þessu sinni vera viðamikinn og fróðlegan. Þar sé meðal annars spurt hvort fólk geti í einhverjum tilfellum skipt um kennitölu og mjög líklega mun svarið við þeirri spurningu koma mörgum áhorfendum á óvart.
Þá spyr Rakel Garðarsdóttir, sem sér um neytendahluta þáttarins um þær gróusögur að allt rusl endi í raun í sömu hrúgunni, þótt fólk keppist við að flokka.
Ég bara spyr er á dagskrá öll þriðjudagskvöld á Hringbraut.