Svo að segja allir kimarnir á þorravenjum Íslendinga eru skoðaðir þessa vikuna í harla þjóðlegum þætti á Hringbraut, sem nefnist Þorrinn, en þar leggst sjónvarpsmaðurinn Sigmundur Ernir í stórskemmtilegt og fróðlegt þorraflandur um bæi og sveitir landsins.
Hann byrjar leiðangur sinn á Þjóðminjasafninu til að kynnast sögu þorrasiðanna hér á landi, en ekur þaðan á Hvolsvöll til að fræðast um matreiðslu súrmatsins og annars veislukosts sem landsmenn hafa notið yfir harðan veturinn. Að svo búnu kíkir hann inn í herlegheitin hjá Handprjónasambandi Íslands sem selur handprjónaðar lopaapeysur í bílförmum, enda 400 prjónandi liðsmenn þess á fullu alla daga, þar af tveir karlmenn - og svo er það harðfiskurinn; hvernig er hann þurrkaður hjá stærsta framleiðandanum í Hvaleyrarholti? Við fáum að sjálfsögðu svar við því, áður en leiðin liggur í brugghúsin til að dreypa á þorrabjórnum og öðru íslensku öli sem er að slá í gegn á alþjóðavísu, en vitaskuld sætir Sigmundur Ernir líka færis og dýfur tungunni í brennivín og snafsa í tilefni kaldra vetrardaga. Á endanum er svo Jói í Múlakaffi heimsóttur en hann hefur staðið við súrkerin frá því hann var strákur, eða í nánast hálfa öld, en segja má með sanni að Þorrinn byrji í einstöku vertshúsinu hans, enda varla til þjóðlegri veitingastaður á landinu öllu.
Þorrinn var frumsýndur á mánudagskvöld klukkan 20:00, en er endursýndur í dag og á morgun, auk þess sem hann er aðgengilegur á vefnum hringbraut.is.