Allt sem þú þarft að vita um hunda

Það má með sanni segja að Hringbraut fari í hundana í kvöld, því spurningar frá hundaeigendum eru teknar fyrir í þættinum Ég bara spyr kl. 21.30. Þar eru gestir Jóhanna Íris Hjaltadóttir, upplýsingafulltrúi Dýrheima, og aðstoðartíkin Irma.

Sú síðarnefnda er aðeins 9 mánaða gömul tík sem þó er að mæta í annað sinn í sjónvarpsþátt á Hringbraut. Það er vegna þess að áhorfendur Hringbrautar hafa verið iðnir við að senda inn fyrirspurnir um gæludýrin sín til Spyr.is, en þaðan er valið úr spurningum og svörum vikulega, til að ræða nánar í þættinum.

Í kvöld eru hundar sérstaklega teknir fyrir og ýmis góð ráð gefin fyrir hundaeigendur og aðra. Þar má til dæmis nefna hvernig fólk á að bera sig að þegar það heilsar hundi, hvort sem það er þeirra eigin hundur eða hundur sem það hittir í vinahúsi eða úti á götu.

Þá skýrir Jóhanna það út, hvers vegna sumir hundar eiga það til að gelta allan daginn þegar þeir eru einir heima. Í þeim tilfellum er algengt að hundarnir fái að valsa um alla íbúðina, þótt raunin sé sú að þegar hundar eru einir, þá líði þeim betur í smærra rými og verða þá rólegri.

Jóhanna Íris skýrir líka út algenga hegðun hunda. Sem dæmi má nefna, gefa hundar oft vísbendingu um vanlíðan þegar þeir geispa eða sleikja út um. Þetta eru merki sem margir hundaeigendur misskilja. 

Þátturinn er á dagskrá kl.21.30 í kvöld, strax á eftir Mannamáli. Þátturinn er síðan endursýndur kl.23.30 og um helgina.