Reyndum allt til að halda í kvótann

Ólafur Hannesson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Hafnarnes VER í Þorlákshöfn segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að allt hafi verið reynt til að halda kvótanum í sveitarfélaginu en Hafnarnes seldi að andvirði 4 milljarða króna kvóta sinn úr bænum til HB Granda. Ólafur segir að leitað hafi verið til fyrirtækja á svæðinu og fjárfesta en ekki tekist að koma samningum á svo lánadrottnar fyrirtækisins gætu samþykkt þá. Hann segir gagnrýni bæjarstjórnarinnar ómaklega og segir bæjaryfirvöld hingað til sýnt fyrirtækinu og lítinn sem engan áhuga fyrr en nú. Forsvarsmenn sveitarfélagsins hafi aldri komið inn fyrir dyr í fyrirtækinu þótt þeim hafi verið boðið það.  Hringbraut fjallar um kvótamissinn í Þorlákshöfn í kvöld í sérstökum þætti um kvótakerfið.