Skorað er á kærunefnd Útlendingamála að endurskoða niðurstöðu í máli mæðgna frá Afganistan þeirra Maryam Raísi og Torpikey Farrash. Að baki þessari áskorun eru alþjóðastjórnmálafræðingarnir Lilja Hjartardóttir og Magnea Marinósdóttir. Magnea hefur starfað í Afganistan og vinnur nú í Jerúsalem og Lilja hefur sérþekkingu á málefnum miðausturlanda og starfar sem fræðimaður í Reykjavíkurakademíunni. Lilja greinir betur frá málinu á Hringbraut í kvöld en hún vísar til þess að utanríkisstefna Íslands hafi lengi verið á þann veg að ekkert annað væri við hæfi en að veita mæðgunum hæli.
Mæðgurnar komu hingað fyrir 11 mánuðum og óvíst hvort að kærunefndin verður við þessari áskorun.