Harðar deilur eru á milli ASÍ og Play Air um launakjör starfsmanna nýja flugfélagsins. Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir í föstudagspistli sínum að ákall um sniðgöngu á Play Air sé vegna þess að mikið sé í húfi og staðan sé alvarleg:
„Hér er ekki aðeins um kjör starfsfólks Play að tefla. Hér er tekist á um grundvallaratriði á íslenskum vinnumarkaði og ef rangt er á haldið geta afleiðingarnar orðið afdrifaríkar fyrir allan almenning.“
Verið sé að brjóta niður stéttarfélög og samstöðu launafólks með því að semja við stéttarfélag starfsmanna Play sem óvíst er hver sé í forsvari fyrir.
„Kjörin í þessum samningi eru lægri en áður hafa sést í þessum geira og almennt lægri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði. Er það í samræmi við kynningar flugfélagsins (þegar félagið hét enn WAB) þar sem félagið reyndi að ganga í augu fjárfesta með fyrirheitum um að flugfreyjur og -þjónar fengju greidd umtalsvert lægri laun en höfðu tíðkast hjá WOW air,“ segir Drífa.
Þessu er alfarið hafnaði í yfirlýsingu Play sem er stjórnað af Birgi Jónssyni. „Skemmdarverkastarfssemi ASÍ byggir á endalausum rangfærslum,“ segir í yfirlýsingunni. „ASÍ ber ítrekað grunnlaun flugliða PLAY saman við heildarlaun flugliða Icelandair. Grunnlaun PLAY eru hinsvegar hærri…“
Segir að ASÍ hafi misnotað vald sitt. „Það var skotið fyrst og spurt svo sem er áfar ábyrgðarlaust við þær aðstæður sem ríkja í samfélaginu."
Drífa segir mikilvægt að komið sé í veg fyrir að launahreyfingin sé brotin niður. „Ef Play leyfist að plokka sjálfsögð réttindi af vinnandi fólki og bjóða lág flugfargjöld með undirboðum í launum þá munu önnur fyrirtæki feta þessa sömu leið, jafnvel í nafni þess að það sé sérstakt frelsimál fyrir vinnandi fólk að geta valið sig frá réttindum í sjúkrasjóðum eða til fjarvista vegna veikinda barna,“ segir hún. „Ef launafólk á viðskipti við fyrirtækið og fjárfestar veita því brautargengi er um leið verið að leggja blessun sína yfir þessi vinnubrögð. Þess vegna enduróma ég enn og aftur samþykkt miðstjórnar ASÍ. Nei við Play!“