Herdísi Þorgeirsdóttur, doktor í lögum, starfandi lögmanni og fyrrum forsetaframbjóðanda, er ekki skemmt vegna hlutfalls karla í Spaugstofuþætti helgarinnar sem Gísli Marteinn Baldursson setur saman. Í færslu á eigin fésbók gerði Herdís athugasemd undir fyrirsögninni að ofan – Allt karlar eruð þið ekki að grínast? en þar vísar hún til þess hóps viðmælenda sem kom fyrir í þættinum hjá Rúv.
Í upptalningu doktorsins á viðmælendum Gísla Marteins eru þessir nefndir:
Ólafur Þ. Harðarson, Kári Stefánsson, Guðni Jóhannesson, Andri Snær Magnason, Guðni Ágústsson, Bogi Ágústsson, Guðjón Friðriksson, Bjarni Benediktsson, Ágúst Guðmundsson, Páll Magnússon , Steingrímur Sigfússon, Gunnar Kvaran, Jón Gnarr, Halldór Blöndal, Svavar Gestsson, Björn Bjarnason, Guðmundur Steingrímsson, Þorsteinn Guðmundsson o.fl. karlar spurðir um áhrif Spaugstofunnar.
\"Karlar að tala um samfélagslega nauðsyn gríns. Eruð þið ekki að grínast?\" Spyr Herdís.
Margir taka undir með Herdísi en skoðun sýnir að Katrín Jakobsdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og Valgerður Sverrisdóttir voru í hópi þeirra sem tjáðu sig um Spaugstofuna í þætti gærkvöldsins.
Eigi að síður er hlutfall kvenna afar lágt. Og segir e.t.v. sína sögu einnig að allir meðlimir Spaugstofunnar voru karlar á sínum tíma.