Allt er nú til: grandinn og bætiefni

Ný verslun Rúmfatalagersins á Grandanum og bætiefni í Heilsuhúsinu verða til umfjöllunar í þættinum Allt er nú til sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45.

Grandinn er í hraðri uppbyggingu. Þar virðist nú til dags allt að gerast.  Hann Ívar er í nýrri verslun á Grandanum og segir okkur betur frá versluninni.

Í þætti kvöldsins verður einnig komið við í Heilsuhúsinu á Laugavegi en þar hittum við Lindu umsjónarmann verslunar sem segir okkur frá hvernig bætiefni við eigum að taka inn á sumrin.

Þættirnir Allt er nú til eru unnir af sölu- og markaðsdeild Hringbrautar, en þar gefst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að kynna vöru sína og þjónustu.

Allt er nú til er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45, en hann er í umsjá Díönu Írisar Guðmundsdóttur, [email protected]