Allt byrjaði þetta á einum litlum kontór

60 ára afmæli stærsta almenna lífeyrissjóðsins á Íslandi eru gerð góð skil í sérstökum þætti Sigmundar Ernis á Hringbraut í kvöld, en þar ræðir hann við Ástu Rut Jónasdóttur, stjórnarformann Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og heimsækir starfsfólk hans í Húsi verslunarinnar.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna á sér langa og merkilega sögu, en starfsemin hófst 1956 á litlum kontór í Fálkahúsinu í miðbæ Reykjavíkur og hafði sjóðurinn þá ekki ráð á nema einum starfsmanni, enda sjóðfélagarnar aðeins 200 í fyrstu, í raun löngu áður en almenningur í landinu áttaði sig á nauðsyn þess að stofna og efla samtryggingarsjóði af þessu tagi, hvað þá að það væri orðin lögboðin skylda að greiða í slíka sjóði.

Afmælisþættirnir um sögu og sérstöðu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna eru tveir, sá fyrri var sýndur á Hringbraut í síðustu viku og sá seinni í kvöld klukkan 21:00, en þar er skyggnst inn í framtíð íslenska sjóðakerfisins með hjálp Ástu Rutar, en einnig fjallað um daglega starfsemi sjóðsins sem er margþætt og drifin áfram af mikilli fagþekkingu eins og vel kemur fram í samtölum við þau Torfa Kristjánsson á lánadeild sjóðsins, Magnús Helgason, áhættustjóra og Jennýju Ýr Jóhanssdóttur hjá lífeyrisdeild sjóðsins.

Sextugsafmæli Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er haldið í ár í bjarma mikillar velgengni sjóðsins, en hann hefur vaxið mjög að stærð og styrk eins og sjá má af uppgjöri síðasta árs. Þar ber hæst að hrein raunávöxtun eigna var 10,2%. Fjárfestingartekjur voru 64 milljarðar og skiluðu allir eignaflokkar jákvæðri ávöxtun. Tryggingafræðileg staða sjóðsins styrktist einnig verulega og var hún í lok árs jákvæð um 8,7% samanborið við 5,1% árið áður og 0,9% árið 2013. Tryggingafræðileg staða er mikilvægur mælikvarði á getu sjóðsins til að standa við skuldbindingar sínar gagnvart lífeyrisþegum í framtíðinni.

Greiðandi sjóðfélagar voru um 49 þúsund og námu iðgjaldagreiðslur til sjóðsins um 22 milljörðum króna. 

Afmælisþátturinn, seinni hluti, er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.