Allt annað líf án sigmundar davíðs

Það var mannmargt í sunnundagsþætti Þjóðbrautar á Hringbraut í morgun. Meðal gesta var Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna. Gegnt henni sat Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Þingstörf eru framundan og þau töluðu meðal annars um það sem framundan er, en einnig nýliðinn tíma á Alþingi, það er vorþingið. Svandís sagði að allt annar andi hafi einkennt þingstörfin eftir afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þá forsætisráðherra. Svandís sagði að þegar Sigmundur Davíð fór í frí hafi myndast allt annað og mun betra andrúmsloft á Alþingi og þingstörfin hafi gengið til muna betur og í allt annarri og meiri sátt en þegar Sigmundur Davíð var enn við störf.