Það er hlýtt í kortunum og vorlegt um að litast víðast hvar á landinu. Komandi helgi virðist því vera upplögð til útiveru, enda hæglætisveður í þokkabót samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Hún gerir ráð fyrir austan og suðaustan 5-15 m/s og rigningu, einkum auðaustantil, en þurru veðri norðaustanlands. Það dregur úr úrkomu um landið vestanvert þegar kemur fram á daginn og léttir til fyrir norðan. Það verður svo heldur hægari suðaustlæg átt á morgun og rigning með köflum, en bjart norðan og norðaustantil.
Hiti verður 3 til 9 stig að deginum, en víða um frostmark norðanlands í kvöld.