Allt að fimm milljarða tap

Skýrsla þar sem mat er lagt á þjóðhagslegum kostnaði vegna verkfalls sjómanna var kynnt seinni partinn í dag. Skýrslan var unnin að ósk sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Þar kemur m.a. fram að tap á útflutningstekjum vegna verkfallsins, sem hófst 14.desember, sé meira en fimm milljarðar króna.

Í skýrslunni segir:

„Fyrirliggjandi upplýsingar um aflabrögð, flutningamagn á sjó og með flugi og útflutning benda til þess að framleiðsluminnkun á ferskum bolfiskafurðum á tímabilinu hafi minnkað útflutningstekjur um 3.500 – 5.000 milljónir króna á tímabilinu“.

Einnig kemur fram að í það minnsta 2400-2600 manns í fiskvinnslu hafi misst tekjur. Tap þess hluta sem er í lægri ráðstöfunartekjuhópi, er metið á um 818 milljónir króna til dagsins í dag, 10. febrúar. Þetta er metið sem beint tekjutap sem fallið hefur á hóp launþega sem ekki á möguleika á að fá hann bættan með nýtingu aflaheimildanna síðar nema ef til vill að mjög takmörkuðu leyti. Áætluð áhrif á greiðslur þessa hóps í skylduiðgjöld lífeyrissjóða eru metin á um 185 milljónir króna.

Atvinnuleysistryggingasjóður hefur greitt um 312 milljónir króna í atvinnuleysisbætur og kauptryggingu til fiskvinnslufólks. Þá er ekki innifalinn kostnaður vegna febrúar.