Mikill verðmunur var á páskaeggjum og páskamat þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum þann 20. mars síðastliðinn. Ódýrustu páskaeggin var langoftast að finna í Bónus eða í 28 tilfellum af 32 á meðan Hagkaup var oftast með dýrustu páskaeggin eða í 19 af 32 tilfellum. Lítill verðmunur er í flestum tilfellum á verði páskaeggja milli Krónunnar og Bónus, en í 25 tilfellum af 32 munaði einungis einni krónu á verð milli þessara verslana.
Þegar litið er til matvöru sem gjarnan er á borðum landsmanna á páskum þá reyndist mikill verðmunur vera á kjöti milli verslana en allt að 127% munur var á frosnum kjúklingabringum, 84% á frosnu lambalæri og 52% fersku lambafille. Mikill verðmunur var einnig á ýmsum öðrum vörum í könnuninni eins og ís, grænmeti, brauði og drykkjarvörum.
Mesti verðmunurinn var á páskaeggjum frá Freyju en allt að 57% verðmunur eða 1.240 kr. munur reyndist á Freyju Ríseggi með saltkaramellubragði nr. 9, Freyju Ríseggi nr. 9, Freyju draumaeggi nr. 9 og Freyju draumaeggi með lakkrís nr. 9. Í öllum þessum tilfellum voru páskaeggin ódýrust í Bónus á 2.129 kr. en dýrust í Hagkaup á 3.399 kr.
Ódýrustu páskaeggin var oftast að finna í Bónus eða í 28 tilfellum af 32 á meðan Hagkaup var með dýrustu páskaeggin í 19 tilfellum. Í 25 tilfellum af 32 munaði einungis einni krónu á verði eggjanna í Bónus og Krónunni.
Verðmerkingum var talsvert ábótavant í Hagkaup en í 8 tilfellum voru páskaegg þar óverðmerkt. Ekkert af þeim páskaeggjum sem verðlagseftirlitið kannaði verð á var fáanlegt í verslun Víðis í Skeifunni og í Costco. Í meðfylgjandi töflu má sjá dæmi um mikinn verðmun á páskaeggjum milli verslana.