Húsnæðissamvinnufélagið Búseti þurfti að hafna mörgum umsóknum við úthlutun þriggja íbúða í gær. Um hverja íbúð voru frá 8 til 30 umsækjendur, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Íbúðirnar eru í Grafarvogi og Grafarholti.
Búseti er með 450 íbúðir í pípunum. Þar af eru 204 íbúðir í Smiðjuholti í Reykjavík og koma þær til afhendingar frá og með miðju næsta ári. Síðasti áfanginn verður afhentur vorið 2018. Félagsmönnum hjá Búseta fjölgaði um á annað þúsund þegar greint var frá þessari uppbyggingu fyrir þremur árum.
Félagið hefur líka hafið byggingu á 18 raðhúsaíbúðum í Reynisvatnsás í Reykjavík og á fjórum íbúðum á Laugarnesi í Reykjavík og verða þær afhentar á næsta ári.
Þá hyggst Búseti láta byggja 52 íbúðir í Suður-Mjódd, 20 íbúðir í Fossvogi og 60-70 íbúðir á Keilugranda í Vesturbæ Reykjavíkur. Framkvæmdir við íbúðirnar á þessum síðastnefndu þremur stöðum eru ekki hafnar og koma þær til afhendingar í fyrsta lagi frá og með hausti 2017, ef vel gengur.
Mikill áhugi er á íbúðum Búseta þar sem menn kaupa sér búseturétt en ekki fasteignina sjálfa. Hentar þetta fyrirkomulag mörgum sem ekki ráða við íbúðarkaup á almennum markaði og tryggir þeim um leið öryggi sem ekki er að finna á leigumarkaði.