Allt að 16 stiga hiti í dag

Útlit er fyrir ágætisveðri um allt land um helgina, en sólin virðist þó lítið ætla að láta sjá sig. Besta veðrið verður að öllum líkindum í dag, en búast má við sól og allt að 16 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi. 

Gera má ráð fyrir svipuðu veðri á Norður- og Vesturlandi í dag; sól og kyrrviðri en hiti verður á bilinu 8 til 15 stig. Á Austurlandi mun lítið sjást til sólar, en hlýtt verður þó í veðri og hitinn á bilinu 7 til 11 stig. 

Á morgun, laugardag verður ágætisveður. Skýjað að mestu en hlýtt í veðri og bjartviðri um allt land. Hlýjast á Suðvesturlandi. Dálítið rigning eða súld norðan- og austantil. 

Á sunnudag má gera ráð fyrir ágætu veðri. Sólin lætur sjá sig í Reykjavík og á Suðurlandi, en hiti verður í kringum 8 til 10 stig. Rigning á Norður- og Austurlandi.